Ofninn hitaður í 180°
Þeyta eggjahvíturnar með saltinu þar til þær eru stífar. Sykrinum bætt smám saman í (ca. 5 matsk. Í einu) og þeytt vel saman áður en næsti skammtur af sykri er settur út í.
Næst er edikinu og kartöflumjölinu bætt varlega samanvið.
Ofnskúffa er klædd með bökunarpappír, deiginu smurt á bökunarpappírinn, sléttað vel og bakað í 15 mínútur þar til kakan er gullinbrún. Kæld á rist
Þegar kakan er köld er henni hvolft á nýjan bökunarpappír.
Rjóminn er þeyttur og smurður yfir kökuna, ávöxtunum raðað yfir og kökunni rúllað upp.Kakan er síðan skreytt með möndlunum og smá flórsykur sigtaður yfir – ef vill.
*Sleppa aldrei saltinu því það auðveldar að þeyta eggjahvíturnar og brýtur niður eggjapróteinið.
*Edikið og kartöflumjölið er nauðsynlegt til að mýkja marensinn.
*Ekki fara í flækju þegar marensinn fer að lyfta sér og þenjast út í ofninum. Hann jafnar sig og sléttist þegar hann er tekinn úr ofninum.