Efni: 1 pk. Snap Jack m/ súkkulaði. 1 egg 1 ¼ dl. Sykur 1 tsk. Vanilludropar 250 gr. Skyr 2 ½ dl. Rjómi Jarðaber, bláber eða annað til skrauts
Þetta má auðveldlega útbúa og geyma í ísskáp í 2 ? 3 daga eða frysta í lengri tíma. |
Aðferð: Mylja kexið vel og helmingurinn settur í bökunarform. Hitt bíður. Eggið, sykurinn, vanilludroparnir og skyrið hrært vel saman. Þeyttum rjómanum blandað í. Helmingurinn af kexinu er komið í form, síðan er helmingurinn af skyrblöndunni settur yfir kexið. Þá kemur restin af kexinu og loks restin af skyrblöndunni. Skreytt með einhverskonar ávöxtum. Kæla vel. Má frysta.
|