1 stór skyrdós t.d. vanilluskyr 1 peli rjómi 1 dós sýrður rjómi 18% Í botninn. 1 pakki LU kanilkex eða annað slíkt Smjör eða smjörvi eftir þörfum.
|
Kexið mulið og smjörið aðeins brætt og bætt saman við, hafa smjörmagnið þannig að það nái nokkurn veginn að bleyta í kexinu. Þrýst í botninn á formi sem er ca. 30 cm. í þvermál. Rjóminn þeyttur, sýrði rjóminn losaður í skál, og aðeins jafnaður, skyrið aðeins hrært upp. Síðan er samsetningin þessi: þeytta rjómanum blandað saman við sýrða rjómann og síðast skyrið. Sett yfir botninn. Kirsuberjasósa með heilum berjum er sett ofan á og einnig borin með. Látið standa í kæli í tvær klukkustundir. |