Efni í hafrakexið: | Aðferð: |
4 bollar Haframjöl 2 bollar Hveiti 1 bolli Sykur 2 tsk. Lyftiduft 1/2 tsk. Hjartasalt 1/2 tsk. Sódaduft 250 gr. Smjörlíki 1 bolli Mjólk. |
Þetta er hnoðað deig: Þurrefnunum blandað saman í skál, smjörlíki mulið og hnoðað saman við, vætt með mjólkinni.
Deigið er flatt út og skorið eftir móti í litlar kökur, pikkað og bakað við 200 ° þar til það er fallega ljósbrúnt. |