Efni: 1 bolli skyr 1 bolli majónes ½ agúrka 1 lítill laukur 1 pk. Jelló hlaup (sítrón)
Þetta er mjög ferskt og gott hlaup sem er tilvalið með ýmsum smáréttum eða eitt og sér t.d. í saumaklúbb o.fl. |
Aðferð: Skyrið hrært ásamt majónesi. Agúrka og laukur rifið niður og bætt saman við skyrhræruna. Hlaupið leyst upp eftir tilsögn á umbúðum og því síðan hellt saman við blönduna. Hella þessu í hringform og láta stífna í ísskáp. Ritzkexi stungið í hringinn til skrauts og einnig borið með .
|