Bökuð Kartöflumús – án ábyrgðar.
Þessa gömlu handskrifuðu uppskrift fann ég aftur eftir að hún virtist glötuð í mörg ár og set hana hér inn svo ég týni henni ekki. Þó hún sé mjög ónákvæm og ófullkomin, þá notaðist ég við hana í gamla daga og okkur fannst gott það sem kom út úr þessu. Én nú verð ég að byrja upp á nýtt og reyna að fá vitræna uppskrift út úr þessu til þess að geta haft þetta sómasamlegt hérna með öðrum uppskriftum. Það dugar ekkert slump á svona vef. .
Kartöflur fyrir svona fjóra til fimm fullorðna.
3 eggjarauður
3 msk. Smjör
Salt
Vatn
3 – 5 msk. Rjómi.
Kartöflurnar soðnar, flysjaðar og stappaðar.
Smjörið og saltið hrært vel saman við.
Eggjunum hrært rösklega saman við ásamt rjóma og vatni – gott að hræra í hrærivél eða með písk. Þetta á að vera frekar þunnt – en ekki lapþunnt -. Sett í eldfast form ca. 3 – 4 cm djúpt.
Bakað í ofni við 250° þar til þetta hefur lyft sér og orðið ljósbrúnt.