Seyði af lakkrísrót: Lakkrísrótin soðin og kæld tekin ein og ein skeið
|
Tee-Tree gufa:Setja nokkra dropa af Tee Tree olíu í sjóðandi vatn og anda því að sér undir handklæði.
|
Portúgalskt ráð: Skera gulrætur í þunnar sneiðar og setja í lögum með púðursykri á milli. Láta standa yfir nótt og fá sér svo eina og eina skeið af leginum sem kemur af þessu.
|
Galdrasafi nöfnu minnar á Akureyri : 2 hvítlauksrif, söxuð 1 msk. ferskur engifer saxaður (eða 1 tsk. Engiferduft) 1/3 tsk. Cayenne pipar 1 kreist sítróna 1 líter sjóðandi vatn. Þetta er sett í t.d. hitakönnu og sjóðandi vatninu hellt yfir. Látið standa í klukkutíma eða lengur. Síað og drukkið. Það má geyma þetta í ísskáp og hita aftur.
Þessi mun vera mjög kröftug og góð og fær góð meðmæli.
|