Óvæntur glaðningur – yndisleg dama leit dagsins ljós.

Lítil dama bættist við í ömmubarnahópinn minn í gær þegar Sigurrós ól dóttur, 50 cm og 14,5 merkur.  Það má segja að þetta hafi verið óvæntur glaðningur því enginn átti von á henni þessa helgina. Ég hef hinsvegar þá trú að henni hafi þótt dagsetningin svo fín að hún hafi flýtt för. 10-03-07.

Það sem ég vissi af Sigurrós var að hún fór árshátíð með kennurunum í skólanum sínum og ekki datt mér í hug að hún færi nærri því beint þaðan í Hreiðrið á fæðingardeildinni.

Sigurrós var búin að ákveða, að fæða án deyfingar og hún stóð við það. Oft sagðist hún þó hafa verið að því komin að hætta að vera hetja, en hún gafst ekki upp þó fæðingin tæki um 10 klukkutíma.
Hún sagði að á einhverjum tímapunkti hefði sér komið í hug það sem frænka hennar hafði sagðt við manninn sinn þegar hún var að fæða – “Ég get þetta ekki, ég vil bara fara heim”.  Hennar maður svaraði þá í mestu rólegheitum “Já , já, við skulum bara gera það”. –

Ég ætla nú að leyfa foreldrunum sjálfum að segja söguna á sínum heimasíðum og fer því ekki út í nein smáatriði.

Ég var í bænum í nótt og komst ekki í tölvu samdægurs til að setja inn mynd og ætla nú að bæta úr því. Ég fór ekki uppeftir aftur í dag því sú litla var í skoðun og svo veitir foreldrunum ekkert af því að hvíla sig. Svo fara þau vonandi heim með hana í fyrramálið og þess verður örugglega ekki langt að bíða að amma skreppi aftur í bæjarferð fljótlega. Guðbjörg er líka alveg að farast úr spenningi að hitta litlu frænku svo kannski förum við saman. Nú ætla ég að sýna ykkur dömuna með pabba sínum, en sú litla er mjög lík honum. Myndina tók ég í gærkveldi þegar við Haukur litum aðeins inn til að skoða hana.

prinsessan1.jpg


Comments

12 responses to “Óvæntur glaðningur – yndisleg dama leit dagsins ljós.”

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *