Nú er líklega ágætt að nota ofsarok og snjókomu til þess að skipuleggja sumarleyfið sitt. Við vorum alveg óráðin í því hvað við gerðum í sumar en þegar ég talaði við systurdóttur mína á Bornholm um jólin þá kom upp ný hugmynd. Hún Erna frænka bauð okkur nefnilega í sextugsafmælið sitt um miðjan júlí. Haukur var ákveðinn að fara út á Jótland til þess að heimsækja fjölskylduna sína þar, svo útkoman er sú að nú þarf að setjast við að pússla.
Við höfum verið að velta því fyrir okkur hvort við ættum að fljúga til Kaupmannahafnar og þaðan til Bornholm og aftur til Kaupmannahafnar og fram og til baka til Söndeborg svo við náum að fara á báða staði. Þá á eftir að finna gistingu á báðum stöðum. – Eg verð nú að játa að ég hefði svo sem ekkert á móti slíku skipulagi.
Hugmyndin er hins vegar sú að fara með húsbílinn í Norrænu til Danmerkur til þess m.a. að vera með húsaskjól allt ferðalagið og sjá okkur um í leiðinni. Við höldum að ferjan komi til Hanstholm. Þaðan myndum við aka yfir Stórabeltisbrúna til Kaupmannahafnar og hugsanlega til Ystad í Svíþjóð og fara þaðan með ferju yfir á Bornholm. Vera í paradísinni Bornholm í einhverja daga og fara síðan með ferju yfir til Þýskalands og aka þaðan og fara yfir landamærin til Suður- Jótlands, en þá erum við sama sem komin til Hullufjölskyldu. Síðan færum við aftur heim með ferjunni sæl og glöð.
Mikið er þetta rosalega einfalt þegar það er sett svona niður – bara svona og svo svona. Við vitum auðvitað ekkert í okkar haus hvernig best væri að framkvæma svona ferðalag ef af yrði og höfum aldrei ferðast á bíl erlendis nema svona stuttar dagleiðir úti á Jótlandi.
Við þurfum að komast að eftirfarandi, og sjálfsagt miklu fleiru en hefst nú lesturinn:
1. Hverjar vegalengdirnar eru á milli staða.
2. Hvaða leiðir er best að fara
3. Hvaða kostnaður er við ferjuferðir, vegatolla og þess háttar.
4. Hvar við finnum stæði til að vera með húsbílinn á, þar sem við stoppum og fleira og fleira.
5. Er svona ferðalag ráðlegt fyrir óvant fólk á okkar aldri.
Ef eitthvert ykkar sem ratar hérna inn á heimasíðuna mína þekkir eitthvað til svona ferðalaga, eða getur bent okkur á hvernig best er að skipuleggja slíkt og finna út kostnað – eða kannski komið okkur í samband við einhvern sem hefur farið í álíka ferð, þá endilega látið mig vita.
Hljómar spennandi ferðalag og verður án efa sneysafullt af ævintýrum. Þekki því miður engann sem hefur ferðast með þessum máta en læt þig vita um leið ef ég frétti af einhverjum.
Þakka þér fyrir Linda mín. Mér finnst við svolítið í lausu lofti með þetta. Ég er afskaplega lítið fyrir að ana út í eitthvað sem ekki er búið að kanna ofaní kjölinn fyrirfram. Maður „tryggir nefnilega ekki eftirá“ eins og segir í auglýsingunni.
Elsku Ragna mín 🙂
Nú er tækjifærið 🙂
Pantiði með Smylla og látið rest ráðast … Þið eruð á guðdómlegum bíl. Getið stoppað þegar þið verðið þreytt. Það er allstaðar hægt að „droppa“ inn á bed and brekfast, og stutt á milli staða ef er ekki laus.
Vertu WILDE. Prófaðu og þú átt eftir að lifa á því endalaust 🙂
Elska þig óendanlega 🙂 kossar og knús
Ja Hulla mín.
Ég var að sjá innleggið þitt núna 21. janúar. Ég hef verið að skoða ferjugjöld fram og til baka á milli þessara staða sem við höfðum hugsað okkur og bara það er alveg rosalegur peningur, fyrir utan eldsneyti og allt annað. Pabba þínum leist ekkert rosalega vel á þetta þegar hann sá að það gæti kostað hátt í hálfa milljón að fara þennan rúnt með húsbílinn með sér.
Pabbi þinn ætlar að tala við þig í kvöld og þá færð þú nánari fréttir af ráðslaginu.