Döðlukaka með heitri karamellusósu


Kakan:

235 g döðlur
1 tsk matarsódi
120 g mjúkt smjör
5 msk sykur
2 egg
3 dl hveiti
½ tsk salt
½ tsk vanilludropar
1 og 1/3 tsk lyftiduft

Setjið döðlur í pott og látið vatn fljóta yfir.
Látið suðuna koma upp, slökkvið á hitanum og látið döðlumaukið bíða í pottinum í 3 mín.
Bætið matarsódanum saman við.
Þeytið smjör og sykur vel saman og bætið eggjunum í, einu í senn.
Blandið síðan hveitinu, saltinu og vanilludropunum saman við.
Bætið lyftiduftinu út í, ásamt ¼ bolla af döðlumaukinu og hrærið varlega í.
Blandið að lokum afganginum af döðlumaukinu út í.
Smyrjið u.þ.b. 8 cm hátt lausbotna form, sem er 24 cm í þvermál, vel með smjöri og setjið deigið í það.
Hitið ofninn í 180°C og bakið í 30 – 40 mínútur eða þar til miðjan er bökuð.
Hvolfið kökunni á tertudisk og berið hana fram volga eða kalda með sósunni og léttþeyttum rjóma.
Einnig má skreyta kökuna með döðlum (eða kannski jarðarberjum?)

Karamellusósan:
120 g smjör
115 g púðursykur
½ tsk vanilludropar
¼ bolli rjómi

Setjið allt hráefnið saman í pott og látið suðuna koma upp.