Marens rúlluterta

 

Marengs rúlluterta. Í fyllinguna:
6 eggjahvítur
salt á hnífsoddi
350 gr. Sykur
1 tsk. Kartöflumjöl
1 tsk. Hvítvínsedik.

 

3 – 4 dl. rjómi (þeyttur)
1 tsk. Flórsykur+ smá til að strá yfir.300 gr. Jarðaber skorin í fjórðuparta400 gr. Hindber eða önnur ber sem fást.30 gr. Möndluflögur (hýðislausar)

Ofninn hitaður í 180°

Þeyta eggjahvíturnar með saltinu þar til þær eru stífar. Sykrinum bætt smám saman í (ca. 5 matsk. Í einu) og þeytt vel saman áður en næsti skammtur af sykri er settur út í.

Næst er edikinu og kartöflumjölinu bætt varlega samanvið.
Ofnskúffa er klædd með bökunarpappír, deiginu smurt á bökunarpappírinn, sléttað vel og bakað í 15 mínútur þar til kakan er gullinbrún. Kæld á rist  

Þegar kakan er köld er henni hvolft á nýjan bökunarpappír.

Rjóminn er þeyttur og smurður yfir kökuna, ávöxtunum raðað yfir og kökunni rúllað upp.Kakan er síðan skreytt með möndlunum og smá flórsykur sigtaður yfir – ef vill.

*Sleppa aldrei saltinu því það auðveldar að þeyta eggjahvíturnar og brýtur niður eggjapróteinið.

*Edikið og kartöflumjölið er nauðsynlegt til að mýkja marensinn.

*Ekki fara í flækju þegar marensinn fer að lyfta sér og þenjast út í ofninum. Hann jafnar sig og sléttist þegar hann er tekinn úr ofninum.