Nýting afganga.

Brokkolíbakstur í ýmsum útgáfum.

 

Efni:
Brokkolí , sem þekur botninn á eld-föstu formi
1 dós Champell sveppasúpa
1 egg
majónes eftir smekk (líklega svona hálf lítil dós)
Rifinn ostur.
Aðferð:
Ef Brokkolíið er ferskt þá sjóða það fyrst í saltvatni.
Champellsúpunni, egginu og majónesinu er hrært vel saman ásamt rifna ostinum.
Brokkolíið sett í botninn á forminu og súpujukkinu hellt yfir.
Bakað í ofni við 200°þar til yfirborðið er aðeins farið að lifta sér og orðið gullinbrúnt.

 

 

Hugmyndir að frekari útfærslum á ofangreindum bakstri.

        

Í Brokkolíbaksturinn má líka nota hverskonar annað

         grænmeti, all eftir smekk og því sem til er hverju
sinni.
        

Sem aðalréttur

         Tilvalið er að bæta í Bro
kkolíbaksturinn,
         afgöngum af kjúklingi, svínakjöti eða öðru sem
         til fellur og bera t.d. hrásalat og smábrauð með.