Kjúklingasalat (GO)

Kjúklingasalat – einfalt og gott fyrir 5 – 6 manns.  

6 litlar kjúklingabringur
Hunts barbequesósa
Krydd, hvítlaukssalt eða annað gott krydd.  

Salat:
1 poki af ítölsku salatiCa.
¼ af salathaus
2 avocado
½ gúrka1 box kirsuberjatómatar
1 box jarðarber
Fetaostur – tæpl.
Ein krukka
½ rauðlaukur  – skorinn smátt
50 gr. Furuhnetur – ristaðar
Tortillar flögur eða DorritosCa. 1/3 úr poka. 

Sósan:
Olía – gott að nota olíuna af fetaostinum.
Balsamic edik
Sinnep Sterkt
Hlyn síróp
2 hvítlauksrif – marin.

Aðferð:
1.     Grænmetið skorið niður og sett í skál.
2.    Kjúklingur skorinn í litla bita – snöggsteiktur á pönnu. Barbeque sósu hellt yfir (bara lítið) og láta malla í smá tíma.
Sósan látin leka af kjötinu.
3.    Tortillas flögur muldar létt – settar yfir salatið.
4.    Kjúklingurinn (volgur) og jarðarberin eru sett yfir salatið rétt áður en rétturinn er borinn fram.