Hjónabandssæla -þessi gamla góða.

 

Efni:

 

2 bollar haframjöl – 170 gr.

2 bollar hveiti      –  170 gr.

1 bolli sykur (svona tæplega) 100 gr.

1 bolli smjörlíki (eða blanda   200 gr.

saman matarolíu og smjörl)

1 tsk. Sódaduft

örlítið af mjólk ef þetta er þurrt.

Ég bætti við efnunum í grömmum- finnst þetta passa vel.

Rababarasulta eða jarðabergasulta.
Epli og smá kanilsykur er viðbót undittitaðrar. Einnig set ég stundum til
helminga sykur og sýróp og gefst vel.
—————-

Þessa uppskrift var pabbi minn með í Tómstundaþætti barna og unglinga sem hann sá um í gamla daga svo ég hef vanist því að borða þessa hjónasælu síðan ég var smástelpa. Ég bætti svo eplunum við og finnst hún nú best þannig. Ekki svíkur svo að borða hana volga með þeyttum rjóma.

 

Aðferð:

 

Öllum þurrefnunum er blandað saman í skál, smjörlíkið brætt ? ég er farin að setja saman smjörl. og ISIO olíu svona upp á hollustuna ? Ef deigið blotnar ekki nægilega þegar farið er að blanda því saman þá má setja örlítið af mjólk en þó ekki svo mikið að deigið verði klessulegt því það á að vera nokkuð þurrt og kögglað.
Taka síðan helminginn af deiginu og þrýsta því niður í form setja sultu, sneiða epli og strá aðeins kanilsykri yfir. Púslasíðan restinni af deiginu ofaná. Stundum, ef ég er í þannig stuði þá strái ég aðeins kanilsykri ofaná líka

Í gömlu uppskriftinni á að baka í 1 klst við 170°C, en ég er farin að baka hana við 200 í svona 35 – 40 mínútur. Mér finnst hún bakast betur, án þess að verða þurr af því að vera í ofninum í klukkutíma.
Það með þessa uppskrift og aðrar slíkar að  það er um að gera að vera ekki hræddur við að breyta.