Appelsínukaka einföld og ódýr.

Hér er ein til að gæða sér á í kreppunni:

300 gr. hveiti
150 gr. sykur
150 gr. smjörlíki
1 egg
3 tsk. lyftiduft
Rifinn börkur og safi úr einni appelsínu.

Sykur og smjörlíki hrært vel saman þar til það er ljóst og létt, egginu bætt út í ásamt safanum úr appelsínunni. síðan er þurrefnunum og rifnum appelsínuberkinum hrært saman við.

Bakað við 175° hita í blástursofni þar til kakan er orðin falleg og bökuð í gegn.  Það fer svolítið eftir því í hvernig formi hún er bökuð hve bökunartíminn er langur. Nota bara gömlu aðferðina að stinga í hana prjóni og sjá hvort hann kemur ekki hreinn út.  Þá passar að fara að laga kaffið.