Efni: 100 gr. Hafragrjón 100 gr. Hveiti 80 gr. Púðursykur 1 tsk. lyftiduft 1 tsk. Kanill 120 gr. Lint smjörlíki eða smjör.—–Sulta, ber eða sulta og epli. Ath. Það er mjög gott að setja frosna berjablöndu eða hindber á milli og skvetta smá hlynsýrópi yfir. Í þessu eins og svo mörgu verður hugmyndaflug hvers og eins að ráða útkomunni. |
Aðferð: Öllum þurrefnunum blandað saman og smjörlíkið mulið í. Hnoðað í vél eða í höndum. Rúmlega helmingur deigsins er settur í botninn á smurðu formi. Sultan, eða annað sem á að vera inní er sett ofan á og síðan er restin af deiginu mulin yfir. Bakað í 25 – 30 mínútur við 170°C hita. Þetta er mjög góð hjónasæla og ekki verra að hafa ís eða þeyttan rjóma með. Ummmm. |
Uppskriftir
Orðabelgur
- koparhylki hrærivél um Vangaveltur um fullkomleikann.
- Kjartan J Hauksson um Vestfjarðarferð 3. hluti.
- ERICA um Górillan í sveitinni – gömul minning.
- magga um Önd í appelsínusósu – Pússlað úr ýmsum áttum – mjög gott.
- evaevahauksdottir um Gamla góða bloggið mitt vanrækt.
Flokkar
- Árin í Englandi. (2)
- Fjölskyldustundir. (2)
- Gamla ástarsagan og ýmislegt henni tengt.. (10)
- Helstu fréttir. (35)
- Hugleiðingar mínar (29)
- Sárar minningar (1)
- Ýmislegt (130)
september 2023 M Þ M F F L S « sep 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30