Ragna Kristín Jónsdóttir




 

Dagbókin mín

3. september 2010  #
13:12:01
Pínku pistill um allt og ekkert.

þá er þessi vikan liðin - hefur flogið eins og þær gera flestar.  Nú er kominn þessi tími sem mér finnst alltaf skemmtilegur, ekki síst fyrir það að skólarnir eru að byrja.  Mér finnst alltaf jafn skemmtilegt að fylgjast með litlu krökkunum trítla hérna niður að skólanum á morgnanna, með stóru skólatöskurnar sínar, sem eru svoooo stórar að það má vart á milli sjá hvort er stærra. Þessi tími vekur alltaf ákveðnar tilfinningar og minningar, bæði hvað varðar sjálfa mig og þegar stelpunurnar mínar voru að byrja sína skólagöngu, en því fylgdi alltaf mikil tilhlökkun og eftirvænting og gerir raunar enn því stelpurnar völdu sér báðar kennarastarfið til þess að geta byrjað í skólanum á hverju hausti allt lífið. já svona er þetta nú.

Ég skrapp austur að Flúðum að heimsækja Sigurrós, Jóa og litlu dúllurnar þeirra í vikunni og fannst tilvalið að fá pabba Jóa sem ferðafélaga, því hann hafði líka ætlað sér að fara. Það er miklu skemmtilegra að vera tveir í bíl, en að keyra hver á eftir öðrum. Við vorum bara heppin með veður og þetta var fín ferð.

Núna ólmast veðrið hins vegar eins og þegar haustlægðirnar skella sem kröftugast yfir, bæði rigning og rok. Þar sem ég sit við gluggan minn og horfi til Keflavíkur þá finn ég til með þeim á Reykjanesinu hvað veðrið ætlar að stríða þeim á Ljósanæturhátíðinni þeirra. Vonandi hraðar veðrið sér yfir svo það lægi kannski og stytti upp á morgun.

Það er aðra sögu að segja af Hauki sem sleikir nú sólina á norðaustur horninu. Þeir bræður hann og Bjarni eru, eins og þeir hafa gert á nánast hverju sumri, að sinna viðhaldsvinnu á bernskuheimilinu Steinholti. Þeir eru langt komnir með vinnuna en á meðan veðrið er svona gott fyrir austan og rigning hér þá er ekki spurning hvorum staðnum þeir kjósa að dvelja á, svo það má búast við að heimferðin geti dregist.  Ég var spurð að því í gærkveldi hvort ég kæmi ekki bara með næsta flugi austur í góða veðrið - en ég þarf aðeins að hugsa betur hvað ég geri í málinu.

Það gengur mikið á í pólitíkinni eins og fyrri daginn og sitt sýnist hverjum. Ég legg það ekki í vana minn að skrifa um pólitíkina - þá leiðinlegu tík sem aldrei er til friðs, en ég verð að játa að ég er ekkert upprifin yfir þessari stjórn sem við sitjum uppi með og hún fengi engin tár frá mér ef hún springi í loft upp.  Jæja segi nú ekki meira.

Öll búum við yfir þeim hæfileika að komast í gegnum
lífið og vera blíð, samúðarrík, skilningsrík og umburðarlynd.

Nei elskurnar mínar þetta sem er hér fyrir ofan á ekkert skylt við ríkisstjórnina.

Góða helgi kæru vinir nær og fjær.

 

 

Leggja orđ í belg
Enginn hefur lagt orđ í belg!

29. ágúst 2010  #
18:25:04
Úr einu í annađ í byrjun haustsins.

Nú er blessað haustið komið. - Allt hefur sinn tíma og sinn sjarma- Nú er gaman að kveikja á lömpum og jafnvel kertaljósum á kvöldin. Svo eiga örugglega eftir að koma fallegir dagar, sem gaman verður að nýta til þess að skoða haustlitina sem náttúran á eftir að skreyta sig með innan tíðar. Það gekk eftir gamla sögnin um að veður breyttist um höfuðdaginn. Mig hefur reyndar grunað eftir því sem sólardagarnir urðu fleiri og fleiri og komið langt fram í ágúst, að gamla sögnin um að veður breytist um höfuðdag myndi ganga eftir og það hefur einmitt gerst. Nú bara rignir og rignir - en það er bara notalegt - alla vega svona fyrstu dagana.  Þá er auðveldara að taka sig til og gera eitthvað af inniverkunum, sem hafa setið á hakanum vegna allra sólardaganna í sumar . Ég man nú bara ekki eftir því áður, að sól hafi skinið nánast hvern einasta dag síðan snemma að vori.

Nú er ég að taka saman í huganum hvað ég ætti helst að gera á komandi haustdögum. Mest langar mig nú til þess að fara að dúlla eitthvað við jólakortin, en ég ætla þó aðeins að reyna að hemja þá hugsun því það er ýmislegt meira aðkallandi sem ætti að hafa forgang.

Haukur er kominn austur á Borgarfjörð í vinnuferð - þeir bræður hann og Bjarni biðu eftir því að veður breyttist og nú virðist sólin loksins komin fyrir austan. Þar hefur lítil sól verið í allt sumar og  vorum við því einstaklega heppin þegar við vorum þar í nokkra daga í rjómaveðri og hita, sem fór upp í 24° í lok júlí.

Guðbjörg og Magnús Már buðu mér með sér í bíltúr í gær laugardag, líklega síðasta sólardaginn í bili. Við fórum fyrst á markaðinn í Mosfellsdal þar sem margt var um manninn og mikið á boðstólum af grænmeti, fiski og hvers kyns afurðum. Þar féll ég fyrir sjóbirting sem við borðuðum svo saman í kvöldmatinn.   Eftir Mosfellsdalinn fórum við í Álafosskvosina þar sem líka var hátíð og mikið um að vera. Mjög góður dagur. Í dag hef ég hins vegar ekki farið út fyrir dyr, bara notið þess að vera heimavið og dútla hitt og þetta. Ég var t.d. að klára að ganga frá bókhaldinu fyrir húsfélagið og prenta út ýmis yfirlit til þess að leggja fyrir húsfund, sem er eftir helgina. Gott að vera ekki á síðustu stundu með það.

Ég nenni ekki að snúa mér aftur að sjónvarpinu í kvöld, lét bara duga að horfa á norska sálfræðinginn. Nú hlakka ég bara til að koma mér í rúmið og hlusta á hljóðbókina sem ég er með í Ipodinum mínum - spennusaga eftir Elisabeth George.

Leggja orđ í belg
Enginn hefur lagt orđ í belg!


<< Ágúst
September 2010
Sun Mán Ţri Miđ Fim Fös Lau
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30
Sjá allar fćrslur


Bloggin sem ég les:.

Heimilisfólk betra.is

Blogg afkomendanna
og tengdasonanna:
Sigurrós
Jói
Ragna Björk  
Freyja Sigrún
Guðbjörg 
Magnús Már 

Bloggin sem ég skoða reglulega:
Þórunn í Portúgal
Afi
Linda á Sikiley
Svanfríður í USA
Palli í Stóradal
Guðlaug Hestnes 
Anna Sigga
Bojskovbúar
Eva 
Katla Lárusdóttir
Simmi
Ingunn og Bjarni/BogI 
Karen Elva
Kolla 
Óðinn

Ýmsir tenglar:

Fyrir konur 
Komið og Dansið 
60 plús  
Borgarfjörður eystri.