Sigurrós (yngri dóttir) skrifar:
Sæl verið þið,
Ég ákvað að skrifa ykkur smá kveðju frá mömmu. Aðgerðin virðist hafa heppnast vel og mamma var farin að hressast nokkuð nú í kvöld þegar ég fór að heimsækja hana. Hún vill örugglega leyfa ykkur að fylgjast með svo að ég tek mér hér með það bessaleyfi að setja hér inn þessar línur 🙂
Bestu kveðjur,
Sigurrós
Takk fyrir Sigurrós, og kysstu mömmu þína frá okkur á Hornafirði.
Frábært að heyra að allt gekk vel.
Berðu henni mínar bestu kveðjur
Hafdís Baldvinsd.
Takk fyrir að láta vita og gott að heyra að allt gekk vel. Skilaðu góðri kveðju til mömmu þinnar frá Þórunni og Palla í Portúgal
Mikið er gott að heyra að aðgerðin hafi tekist vel. Bestu batakveðjur