Það var yndislegur dagur í gær þegar Karlotta mín fermdist hérna í Lindakirkju og svo glöddust fjölskylda og vinir með henni í veislunni á eftir.
Ég get ekki skrifað neinn texta núna en ætla að reyna að setja inn nokkrar myndir. Ég verð nefnilega að pikka þetta með annarri hendi því það er einhver fjárinn að vinstri öxlinni minni svo ég get ekki notað vinstri handlegginn – í bili.
Þessi myndasería skýrir sig sjálf,
en fyrir þá sem ekki þekkja, þá er Karlotta á neðstu myndinni
með Kristófer stjúpbróður sínum, sem fermdist einnig um þessa helgi.
Svo er smá sýnishorn af krásunum.
Gleðidagur
Þetta hefur verið mikill gleðidagur, stúlkan svo falleg og fín, að ekki sé talað um sönginn hennar og veitingar, ég verð nú bara svöng við að horfa á þetta það er svo langt síðan ég hef lent í svona ekta fermingarveislu. Innilegar hamingjuóskir frá okkur Palla.
Þakka þér fyrir Þórunn mín. Já við erum öll svo ánægð með daginn hennar.
Kær kveðja til ykkar Palla.
Hvílíkar krásir og stúlkan gullfalleg; til hamingju með þessa gersemi!
Þakka þér fyrir Katla mín.
Innilega til hamingju með dömuna elsku Ragna, þetta er stór dagur í lífinu. Kræsingarnar eru glæsilegar, og nótnatertan, maður lifandi! Kærust í bæinn.
Til hmganiju með afmælið Árni Dagur og takk fyrir síðast ! Við verðum svo í bandi hvenær við eigum að hittast næst
Þakka þér fyrir Guðlaug mín. Já þetta var yndislegur dagur í alla staði.