Í dag eru 15 ár frá því að við Haukur sáumst fyrst og dönsuðum saman fyrsta dansinn eftir hringdans í Ártúni 1990. Síðan höfum við dansað saman í gegnum lífið.
Magnús Már var að kenna mér að nota PhotoFiltre í dag svo ég mátti til með að setja inn þessa mynd, sem ég var að laga til.
Hamingjuóskir
Ég óska ykkur innilega til hamingju með hvort annað. Megið þið dansa saman ótalmörg ár í viðbót.
Það er gaman að sjá hvað þér hefur tekist að gera skemmtilegan ramma utan um myndina af ykkur Hauki.
Glæsilegt!
Þetta er aldeilis sniðugt forrit sem þú ert komin með 🙂
Hlakka til að sjá fleiri myndir!
Já, og til hamingju með daginn ykkar Hauks! Ég er mjög ánægð með að þú skulir hafa hitt þennan yndislega mann á dansgólfinu 🙂
Hamingjuóskir
Óska ykkur til hamingju með daginn ykkar. Ég held að þið hafi bæði verið óskaplega heppin.
Bestu kveðjur frá Hvolsvelli.
Hamingjuóskir!!!!!!!
Elsku Ragna og pabbi! Til lukku með daginn. Þið eruð lang flottust :o)
Til hamingju!
Flott umgjörð um myndina. Er þetta kerfi svipað og Photoshop? Til hamingju með tímamótin. Farðu vel með þig.
Þakka ykkur öllum fyrir góðar kveðjur.
Anna Sigga, ég þekki ekki Photoshop svo ég hef ekki samanburð við það.
Kær kveðja,
Lífið er dans. Megi hann vera á rósum hjá ykkur.