Já, hann á 30ára afmæli í dag hann Jóhannes Birgir tengdasonur minn og óska ég honum hjartanlega til hamingju með daginn.
Ég fæ nú að smella kossi á hann á eftir því að þau nýgiftu hjónin ætla að koma austur í afmælisveislu Odds Vilbergs sem verður í dag. Oddur á reyndar ekki afmæli fyrr en 22. en hann verður líklega ekki heima um þá helgi og þegar maður er að verða 6 ára þá sleppir maður því ekki að halda upp á afmælið sitt heldur breytir bara um dag. Þeir drekka því afmæliskaffi saman strákarnir þó aldursmunurinn sé allnokkur.
Eigðu góðan og skemmtilegan afmælisdag Jói minn.