Afmæli í gær.

Hún ágústa María, systurdóttir mín átti afmæli í gær og ég sendi henni bestu afmæliskveðjur þó seint sé.

Ég setti nú inn kveðju í gær en barnabörnin sváfu hérna hjá ömmu í nótt og eitthvað hefur flýtirinn verið mikill hjá mér að koma þessu inn áður en ég slökkti á tölvunni um áttaleytið þegar krakkarnir voru að fara í rúmið. Ég hef sem sé ekki vistað.

Ekki get ég heldur með nokkru mótið komið inn mynd. Skýringin á því er að öllum líkindum sú að Jói er að uppfæra vefsíðuna og einmitt hvað varðar það að setja inn myndir.

This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink.

3 Responses to Afmæli í gær.

  1. Jói says:

    Reyndar…
    er það svo að þú gleymdir að birta færsluna í gær, hún er í kerfinu hjá þér.

    Með að birta myndir þá opnast núna nýr gluggi (kannski þarf að leyfa popup gluggum að opnast í vafranum) þar sem hægt er að velja myndina í felliglugga.

  2. afi says:

    Alltaf er það eitthvað. En þetta er alltaf svo flott og fín hjá þér að það er óþarfi að hafa áhyggjur.

  3. María says:

    Hjartans þakkir
    Sæl Didda,
    Takk fyrir afmælisóskina.
    Myndarlegt myndefni.
    Kveðja/María

Skildu eftir svar