Nú óska ég ykkur öllum
GÓÐRAR HELGAR
Sjálf ætla ég á langþráð þorrablót
og dansa gömludansana fram á rauða nótt.
Ég ætla að bæta hérna við brandara sem ég fékk sendan áðan.
Maðurinn, sem situr við tölvuna, segir við konu sína:
"Ekki vil ég enda sem eitthvað grænmeti, háður einhvers
konar rafmagnstæki til að halda í mér lífinu.
Ef slíkt gerist þá bið ég þig um að taka það úr sambandi".
Konan gekk samstundis að tölvunni og tók hana úr sambandi ! .
Góða helgi til baka..
Dansaðu og tjúttaðu eins og enginn morgundagur komi..
Góða skemmtun..
Góða helgi
Ég segi líka góða helgi og njótið vel þess sem hún hefur að bjóða. Æ hvað það væri nú gaman að djamma með ykkur þessa helgi.
Mér líður einmitt eins og grænmeti núna eftir að hafa verið að slæpast í tölvunni í allt kvöld 😉
Góða skemmtunn… Þið troðið nú kannski smá súrmat í vasana og takið með ykkur, til okkar hingað út 🙂
Fínn þessi brandari 🙂 Á þessu heimili verður þó hvort að kippa hinu úr sambandi. Tvær tölvur. Fórum á skíði um síðustu helgi, fyrsta skipti í 16 ár. Dregin af syni og tengdadóttur. Á mínum aldri finnst mér það kraftaverk. Brunaði niður með lokuð augu.
Mikið var falleg myndin af þér með rósina við gluggann svo og allar hinar myndirnar. Gaman að horfa á þetta. Ég er þó enn að hlæja að “górillu” sögunni. Skemmtu þér vel á Þorrablótinu.
Kolla
Stuð, stuð
Það er bara stuð á minni. Vonandi var þetta hörku fjör.
Fjörið er bara rétt að byrja og nær hámarki í kvöld.
Góða skemmtun á blóti í kvöld. Vonandi spilar hljómsveitin gömlu dansana, það er ekkert gaman að hljómsveit á blóti ef hún spilar bara rokk og ról. Segðu okkur svo þorrablótssöguna næst þegar þú sest við. Heyrumst, Svanfríður