Já, hann Jón Ingi mágur minn á afmæli í dag 8. maí og ég óska honum til hamingju með daginn.
Hann er að undirbúa opnun enn einnar sýningar á verkum sínum, en sú sýning opnar n.k. fimmtudagskvöld í Óðinshúsi á Eyrarbakka bernskuslóð Jóns. Tilvalið að kíkja þangað í sunnudagsbíltúrnum. Ég get nú ekki lýst staðsetningu sýningarsalarins en býst við að allir á Eyrarbakka viti hvar þetta er og geti vísað aðkomumönnum á réttan stað.
Svona nýtur Jón Ingi sumarsins best,
á fallegum stað með trönur, striga, pensla og liti.
Ekki slæmt það og svo fáum við hin að njóta.
————-
Svo á hún Hugljúf hans Hauks líka afmæli í dag en ég sé að ég verð að taka af henni betri mynd á nýju vélina þegar við hittumst næst.
Hulla mín til hamingju með daginn, nú styttist óðum í að við komum í heimsóknina til ykkar í Danaveldi. Kær kveðja til allra.
Óðinshús
Hvað er betra en að vera útí Guðsgrænni náttúrunni og mála fallegar myndir? Nú er bara að finna Óðinshúsið á Bakkanum.
Kveðja frá Danaveldi
Innilegar hamingjuóskir til afmælisbarnanna. Við erum í góðu yfirlæti og dásamlegu veðri í Herning. Óskum ykkur góðrar ferðar hingað. Bestur kveðjur frá Þórunni og Palla
Það er aldeilis að afmælin hrannast upp hjá þér og þínum á þessum tíma.. til hamingju með allt þetta fólk..
Þetta er flott mynd af listamanninum..