Ég ætla ekki að gleyma að senda honum Magnúsi Aðalbjörnssyni tengdaföður Guðbjargar minnar mínar allra bestu afmæliskveðjur og ekki efa ég að Haukur hefði sent kveðju ef hann væri heima.
Hérna er mynd af höfðingjanum í góðum félagsskap
með litla afastrákinn sinn Ragnar Fannberg í fanginu og hin horfa hugfangin á
Það er nóg að gera í afmælunum þessa dagana hjá þér Ragna mín! Til hamingju með tengdaföðurinn. Vonandi ertu hress og kát, Svanfríður
Kærar þakkir
Ragna mín kær! Ég þakka falleg orð í minn garð og einnig skemmtilegu ritgerðirnar þínar sem ég fylgist grannt með. Það er okkur ómetanlegt á norðurhjaranum og sífreranum að fylgjast með ykkur í sólskininu sunnan heiða. Kær kveðja
Það eru nóg af afmælunum í kringum þig, svo mikið er víst..