Er hægt að hugsa sér nokkuð skemmtilegra ……

Ekki hafði hann nú nein slæm áhrif á mig eða mína, föstudagurinn  þrettándi enda hef ég svo sem aldrei þurft að hafa áhyggjur af slíkum dögum sem hafa bara komið og farið án þess að skilja eftir sig spor.

Helgin var bara ágæt. Haukur kom í síðasta vaktafríið sitt á laugardaginn og á sunnudaginn komu Guðbjörg, Magnús Már og Ragnar Fannberg í kaffisopa til okkar. Það er gaman að fylgjast með honum nafna mínum sem er alveg að fara að taka sín fyrstu skref hjálparlaust.  Hann er auðvitað löngu farinn að ganga með öllu og stendur stundum án þess að styðja sig og klappar jafnvel saman lófunum en þegar hann uppgötvar að hann stendur einn og óstuddur verður hjartað eitthvað svo smátt og kjarkurinn lítill  svo maður lætur sig bara gossa niður á botninn – svona til öryggis.

Þessa mynd tók amma á föstudaginn, þegar minn ætlaði að laumast inn 
í herbergi hjá systur sinni og vinkonu hennar.

hjartaknus2.jpg

Svo er mynd af ömmustubbnum sem enn er ekki of stór til að láta ömmu kalla sig þessu nafni. Hér er hann nýkominn úr Ameríkuferðinni með dúkkustrákinn sem hann keypti sér af því hann hafði ekki litla bróður sinn nálægan til að knúsa.

hjartaknuser1jpg.jpg

Auðvitað langaði þau til að fá að sjá Rögnu Björk frænku sína
þegar þau komu úr Ameríkuferðinni.

med_litlu_fraenku.jpg

Er hægt að hugsa sér nokkuð skemmtilegra og meira gefandi en að vera amma? – Ég held bara ekki.

This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink.

5 Responses to Er hægt að hugsa sér nokkuð skemmtilegra ……

  1. Guðlaug Hestnes says:

    nei…
    það er ekkert í veröldinni sem slær því við. Líði ykkur vel.

  2. Svanfríður says:

    Hún er yndisleg myndin þar sem hann læðist inní herbegið..aðeins að gá hvað er á seyði:)

  3. Þórunn says:

    Ömmuhlutverkið
    er MJÖG mikilvægt, ég er sammála þér í því að það jafnast ekkert á við það. Yndislegar myndir af þessum fallegu brosmildu börnum.
    Þórunn

  4. Linda says:

    Frábærar myndir Ragna.. mikið er ömmustubburinn með svakalega falleg augu.. Þau alveg bræða mann..

    farðu vel með þig elsku Ragna.

  5. Ragna says:

    Sjarmörinn
    Já hann er með falleg augu þessi elska og sjarmerar ömmu alltaf upp úr skónum, hvernig er annað hægt?

Skildu eftir svar