Mér hefur fundist gaman að nefna afmælisdaga vina og vandamanna hérna á síðunni minni, en í sumar hefur þetta farið út og suður og oft hef ég verið í burtu eða ekki í tölvusambandi þegar einhver hefur átt afmæli. Þannig duttu út afmæli þriggja systurbarna minna, en það eru afmælisdagar sem ég hef alltaf munað, 7. júní, 14. júlí og 6. ágúst, enda eru það fyrstu barnabörn móður minnar sem eiga afmæli þessa daga.
Í dag á hinsvegar hann Jói (Jóhannes) tengdasonur minn
afmæli, en það er honum að þakka að
ég á heimasíðuna mína á betra.is.
Jói minn, innilega til hamingju með daginn.
Mér þykir svo vænt um þessa mynd af Jóa og Sigurrós,
sem er tekin á Kambsveginum þegar þau voru aðeins
búin að vera saman í nokkra mánuði og það
leynir sér ekki hvað þau eru ástfangin.
Falleg..
mynd, og til hamingju. Daman er mjög lík þér á þessari mynd. Kveðja