Meira um Danmerkurferð.

Á meðan við vorum hjá Guðbjörgu og Magnúsi Má þá fórum við með þeim í dýragarð í Óðinsvéum.

Hér eru stóru barnabörnin mín
Karlotta og Oddur Vilberg að skoða fiskana.

barnab1.jpg

Ragnar Fannberg skemmti sér líka vel og þurfti að spyrja um alla hluti.
Hér er hann hugsandi á svip í fangi mömmu sinnar.

barnab2.jpg

Þegar við vorum búin að skoða allt í þessum fallega dýragarði þá fórum við og ætluðum að skoða H.C.Andersen húsið en þá var nýbúið að loka safninu og við röltum bara um gömlu göturnar þar í kring.

Þessi mynd átti að vera af þeim hjúum en
Oddur stökk inn í myndina og náði að vera með.

gogmmm1.jpg

Og hér er undirrituð við útidyr H.C.Andersens húss.

hcand.jpg

 

This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink.

One Response to Meira um Danmerkurferð.

  1. Mikið eru myndirnar þínar æðislegar – þið hafið greinilega átt yndislegt ferðalag saman:)
    Bestu kv. frá Kötlu

Skildu eftir svar