Ég hélt í dag að nú væri ég komin með alvarleg elliglöp. Ég var að bíða eftir útvarpsfréttunum klukkan fjögur, var ekkert sérstaklega að hlusta á auglýsingarnar, en hrökk við þegar ég heyrði allt í einu auglýsingu sem hljóðaði þannig: "Jólahlaðborð – Skíðaskálinn Hveradölum".
Mig rak í rogastans, ekkert farin að þrífa eða baka fyrir jólin, hvað þá kaupa jólagjafirnar.
Ég fór að spá í hvort ég hefði kannski misst minnið og ég misst úr margar vikur, það væri kominn desember, alla vega nóvember. En, sem betur fer slapp ég með skrekkinn í þetta sinn því við nánari athugun er bara 10. september.
Ja hérna- ekki er ráð nema í tíma sé tekið.
Hahahaha
Var tetta ekki grín???
Er strax farid ad auglýsa jólahladbord?
Knús til ykkar.
Þeir hafa greinilega keypt svona „árstíðapakka“ fyrir allt árið hjá útvarpsstöðvunum!! Eru búnir að auglýsa grimmt í sumar:
„Brúðkaup – Skíðaskálinn.“
Ekki menn margra orða þarna uppfrá!
Þetta er sko fúlasta alvara.Það er alveg svakalegt að hrella mann svona. Ætli ég biðji ekki um ókeypis á jólahlaðborðið fyrir að gera mér svona bylt við. Ha,ha.
Ja hérna.
Ekki er ráð nema í tíma sé tekið.
ekki er ráð…
Þeir gerðu þetta í fyrra líka, og nú bíð ég bara eftir IKEA. Fer alveg að koma að þeim. Rugl. Kær kveðja í bæinn.
Já, nú getum við beðið spenntar eftir því hvaða búð fer fyrst af stað með jólaskrautið – enda ekki seinna vænna; Þ
Ekki skal mig furða að þú hafir hrokkið við, það ætti bara að banna svona auglýsingar í september. Var ekki búið að gera samkomulag um að byrja ekki að spila jólalögin fyrr en í desember, eða var það nóvember??
Kveðjur frá okkur Palla,
Þórunn