Brosfaraldur.

þETTA FÉKK ÉG LÍKA SENT OG 
FINNST ÞAÐ EIGA ERINDI VIÐ OKKUR Í DAG. 

Ég gerði merkilega uppgötvun í dag.
Ég uppgötvaði að bros er jafnsmitandi og flensa.

Það brosti til mín alókunnugur maður og ég brosti á móti
og hélt svo bara áfram að brosa.

Ég labbaði fyrir næsta horn þar sem ég mætti
öðrum ókunnugum manni.

Þegar hann sá mig brosa, brosti hann á móti
og gekk svo brosandi í burtu.

Þá laust niður hjá mér þessari staðreynd,
ég hafði smitað hann.

Guð veit hvað hann hitti marga og smitaði þá.
Ég fór að hugsa um þetta bros og skildi þá
hversu mikils virði það er.

Eitt lítið bros eins og mitt,
gæti breiðst út um heimsbyggðina.

Svo ef þú finnur að þú ert að bresta í bros,
ekki halda aftur af því.

Komum af stað faraldri sem fyrst,
stefnan er að smita allann heiminn.

         

This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink.

Skildu eftir svar