Hvað er kærleikur?
Kærleikur er, hvert góðverk sem þú vinnur.
Kærleikur er, hvert bros sem þú gefur.
Kærleikur er, að faðma þann sem grætur.
Kærleikur er, að hugga þann sem syrgir.
Kærleikur er, að gefa þeim sem þarfnast
Kærleikur er, umhyggja fyrir öllu sem lifir.
Kærleikur er, að biðja fyrir öllum, góðum sem slæmum.
Kærleikur er, að lifa sáttur við sjálfan sig og aðra.
Kærleikur er, að dæma ekki.
Kærleikur er, ljósið sem býr í hjarta þínu.
Munum einnig eftir að koma fram við aðra
eins og við viljum að komið sé fram við okkur.

This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink.

Skildu eftir svar