Já hún Ragna Björk á þriggja ára afmæli í dag. Amma óskar henni innilega til hamingju með afmælið og allrar blessunar í framtíðinni. Vitanlega fer svo amma í afmælisveisluna hennar um næstu helgi og hlakkar mikið til. Ragna Björk er svo skýr og skemmtileg stelpa og alltaf gaman að hitta hana.
Á myndinni hérna fyrir neðan er hún með Herbert, kálhausadúkkuna sem mamma hennar fékk líklega þegar hún var á þessum aldri. Herbert hefur verið góður förunautur og ber aldurinn vel því hann er kominn langt á þrítugsaldurinn. Þau Ragna Björk hafa alltaf verið góðir vinir og frá fyrstu tíð tók Sigurrós myndir af henni með Herbert til þess að sjá stærðarmuninn. Það leið nú ekki á löngu þar til Ragna Björk var komin langt fram úr honum í stærð.
Til hamingju litla nafna mín.
Til hamingju með nöfnu þína!
Afmælisbarn
Innilegar hamingjuóskir frá okkur í Kotinu.
Til hamingju með þessa fallegu hnátu Ragna mín með kærri kveðju í bæinn.
Mig langaði bara að þakka fyrir góða uppskrift af Hjónabandssælu – er að baka hana í annað skipti núna og finnst hún agalega góð. Ætla að prófa fleiri uppskriftir frá þér við tækifæri.
Takk fyrir mig 🙂
Gott að þér líkar hjónabandssælan Katrín. vertu velkomin hingað hvenær sem þú vilt.