Komin aftur.

Þá er ég komin aftur til leiks og eins og þeir sem fá Óskarsverðlaunin gera ætíð, þá ætla ég að byrja á því að þakka þeim sem hafa saknað mín og sent mér kveðjur. Það þótti vissast að fara með mig nógu langt í burtu frá tölvunni svo ég færi ekkert að stelast til að skrifa þegar ég átti að vera í fríi frá tölvunni. Mallorca varð því fyrir valinu, það þótti nógu langt í burtu frá blessaðri tölvunni minni. Ég segi kannski eitthvað meira um ferðalagið  næstu daga. Þetta verður að koma í smá skömmtum því ég verð ennþá að passa mig vel. Ég ætla líka að setja inn myndirnar úr ferðalaginu um helgina, þ.e.a.s. Sigurrós ætlar að koma á sunnudaginn og hún bauðst til að sjá um það fyrir mig.


Það er alltaf gaman að fara til útlanda en best af öllu er að koma heilu og höldnu heim aftur. Það verða lokaorðin mín á þessum stutta pistli í dag.

This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink.

2 Responses to Komin aftur.

  1. Sigurrós says:

    Velkomin heim!
    Hlakka til að kíkja í kaffi til þín á sunnudaginn :

  2. afi says:

    Velkomin aftur, bíðum spennt eftir ferðasögunni.

Skildu eftir svar