JÓI OG SIGURRÓS – TAKK FYRIR NÝJA ÚTLITIÐ

Mikið rosalega varð ég glöð í kvöld þar sem ég var stödd hjá Guðbjörgu og Magnúsi Má, þegar Magnús kom og hrósaði nýju síðunni minni.

Það kom mér svo sem ekki alveg á óvart að ég myndi fá nýtt útlit einhvern daginn, því ég vissi að þau Jói og Sigurrós væru að hanna nýtt útlit á síðuna mína.

Ég veit ekki hvað ykkur finnst kæru blogg vinir en ég er alveg rosalega ánægð með þetta og Sigurrós og Jói ég þakka ykkur kærlega fyrir þessa andlitslyftingu

– Nú vantar mig bara einhvern góðan í annars konar og enn flóknari andlitslyftingu 🙂

This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink.

3 Responses to JÓI OG SIGURRÓS – TAKK FYRIR NÝJA ÚTLITIÐ

  1. Voða blátt og fínt
    Sæl Ragna, komin tími til að kíkja við hjá þér, síðan er aldeilis fín og gott að hafa svona þrjá dálka…ætla að setja þig í „annað fólk“ hjá mér svo ég missi ekki af neinu 🙂 bestu kveðjur, Gurrý

  2. Magnús Már says:

    Litir
    Litirnir á síðunni eru ljósari – sem er gott. Laxness segir um litina: „Í þann tíð voru sumurin laung á Íslandi. Á mornana og kvöldin voru túnin svo græn að þau voru rauð og á daginn var víðáttan svo blá að hún var græn.?

  3. Þórunn says:

    Andlitslyftingar
    Andlitslyftingar eru ekki alltaf til bóta, en þessi var til bóta.
    Þetta er skemmtileg uppsetning, auðlesið letur, að ég tali ekki um litinn, sem er í miklu uppáhaldi hjá mér. Semsagt, stílhrein, falleg síða, til hamingju.

Skildu eftir svar