Ekki búin að gleyma.

Bara til þess að láta ykkur vita að ég er ekki búin að gleyma dagbókinni minni þá er ég búin að vera í borgarferð (Reykjavík), síðan á fimmtudag og kom aftur heim í dag. Ætli ég láti ekki verða af því á morgun að segja ykkur hvað á daga mína hefur drifið þennan tíma.
Núna ætla ég hinsvegar að drífa mig í hlýja rúmið mitt, hlusta á rigninguna lemja á glugganum og svífa svo inn í draumaheim þar sem sólin skín og marglitu blómin vaxa.

Nei bíddu nú við, þetta hljómar svolítið hátíðlega, Svona til að forðast misskilning þá ætla ég ekki í heimsókn til himnaríkis ennþá – var bara með Spán eða eitthvað álíka í huga.

Ég býð bara góða nótt.

This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink.

One Response to Ekki búin að gleyma.

  1. afi says:

    Alltaf að bæta og breita. Þetta er orðið reglulega fínt hjá þér.

Skildu eftir svar