Loksins tókst það.

Já loksins tókst mér að koma mynd hérna inná. Þetta er nú bara ein af mörgum myndum sem sýna útsýnið hjá honum Hauki mínum eftir að hann flutti um síðustu helgi. Eitthvað verður hann að hafa til að horfa á þegar konan er á Selfossi en hann í Reykjavík.

IMG_0117

This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink.

3 Responses to Loksins tókst það.

  1. Anna Sigga says:

    Er þetta úr Austurbrún 4?
    Mamma átti íbúð um tíma á 5. hæð (minnir mig) í blokkinni við Austurbrún 4. Við vorum þar um áramótin ´99-´00, þegar Helga gekk með eldri dóttur sína. Flott útsýni Tvíburarnir voru 3 ára og fundust „áramótarnir“ eins og þeir kölluðu flugeldana vera flottir. Annar strákanna var í því að ganga á milli manna og óska þeim Gleðilegs árs, aftur og aftur og aftur…. 🙂

  2. Þórunn says:

    Útsýni
    Þetta er alveg frábært útsýni og myndin mjög falleg. Bestu kveðjur til Hauks og hamingjuóskir með nýju íbúðina.

  3. afi says:

    Jah, hérna! Flott skal það vera. Fallegt útsýni og vel tekin mynd. Er hægt að hugsa sér það betra?

Skildu eftir svar