Loftur á afmæli í dag.

Í dag á hann mágur minn Loftur Þór (t.h.) afmæli. Ég hef þekkt hann síðan hann var smástrákur – núna er hann bara strákur –  og óska ég honum hjartanlega til hamingju með daginn. Ég var búin að reyna að aðskilja hann frá okkur Magnúsi Má á myndinni svo hann gæti átt einn sína afmælismynd, en þannig vildi myndin ekki inn á síðuna mína svo Loftur verður að sætta sig við félagsskapinn.

Síðan á hún Silla afmæli í dag, en hún er föðursystir Karlottu og Odds. Ég hef þekkt hana síðan hún var smá smástelpa en hún er nú hálfgerð smástelpa ennþá  19 ára í dag. Til hamingju Silla, því miður á ég enga mynd sem ég get látið á vefinn.

07_31_Saelukotshatid_040.jpg

This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink.

7 Responses to Loftur á afmæli í dag.

  1. Magnús Már says:

    Loftmæli
    …enda er þetta mjög góður félagsskapur sem maðurinn er í, ég verð bara að segja það.

  2. Ragna says:

    Já vitaskuld er ekki ástæða til að draga það í efa.

  3. Sigurrós says:

    Vinsæll afmælisdagur
    Tveir nemenda minna eiga einnig afmæli í dag og bróðir þriðja nemandans líka 🙂

  4. afi says:

    Alltaf er ljúft að vera í góðum félagsskap. Til hamingju með „strákinn“

  5. Silla says:

    Takka kvedjuna Ragna…. eg stækkadi samt ekkert tratt fyrir ad hafa att afmæli, eg er farin ad halda ad eg eigi ekkert eftir ad na 160 cm.

  6. Ragna says:

    Margur er knár þó hann sé smár.
    Silla mín! Þó þú náir ekki 160 þá er nú margur knár þó hann sé smár. það á örugglega við þig. Láttu þér bara líða vel og vera hamingjusöm.

  7. Loftur says:

    Já, takk fyrir að muna eftir deginum sem hefur verið kallaður „sólardagur ættarinnar“ síðan 1956. Allir vita hvers vegna.
    Kveðja, Loftur.

Skildu eftir svar