Hún á afmæli í dag…….

Í dag á hún Karlotta ömmustelpan mín 9 ára afmæli. Hún fær heimsins bestu afmæliskveðjur og amma hlakkar til að koma í afmæliskaffið sem verður, ef mamma verður ekki komin á fæðingardeildina. Afmælismálum í fjölskyldunni er nefnilega þannig háttað að í gær 18. mars átti Ragna tengdamamma Guðbjargar minnar afmæli, í dag 19. mars á Karlotta afmæli, og á morgun 20. mars er svo afmælisdagur Guðbjargar og hver veit hvern daginn litli bumbubúinn velur sér sem sinn afmælisdag.

Þessi mynd er tekin af Karlottu í vetur á samspili í tónlistarskólanum.

img_0515.jpg

Og hérna er hún Ragna nafna mín, sem fær mínar bestu kveðjur í tilefni gærdagsins.

Myndin er tekin á Spáni s.l. sumar á gömlu myndavélina mína og er því óskýr eins og flestar myndir sem ég tók á þá vél.

ragna_m.jpg

This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink.

4 Responses to Hún á afmæli í dag…….

  1. Svanfríður says:

    Til hamingju með þau öllsömul. Og nú fer nýjasti meðlimurinn að koma í heiminn-yndislegt og spennandi.

  2. Sigurrós says:

    Við Jói bíðum spennt eftir að komast í afmæliskaffið á Selfossi og okkur finnst auðvitað að bumbubúinn eigi að láta sjá sig áður en við förum aftur til Reykjavíkur 😉

  3. Ragna says:

    En gaman Sigurrós mín! Kannski ég fái þá loksins að hafa ykkur í nokkra daga. 🙂

  4. Hulla says:

    Til lukku með ömmustelpuna 🙂 Vá hvað tíminn líður hratt.
    Bestu kveðjur héðan

Skildu eftir svar