Afmæli dagsins.

4. maí er mjög góður dagur. Þennan dag fæddist systir mín Edda. Ég var svo heppin að hún fæddist 7 árum á undan mér svo ég naut góðs af því að eiga stóru systur sem leit til með mér. Það má líka segja að hún líti ennþá til með litlu systur því við búum á sitthvorum enda í sama raðhúsinu.

Ég óska Eddu hjartanlega til hamingju með daginn og líka honum Birgi, tengdasyni hennar sem á einnig afmæli í dag.

Þetta er Edda um það leyti sem hún eignaðist litlu systur.

edda02.jpg

Svo átti hann Oddur minn Vilberg afmæli 4. maí, blessuð sé minning hans.

ovp.sized.jpg

This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink.

2 Responses to Afmæli dagsins.

  1. svanfríður says:

    Til hamingju með allt þetta fólk:) Og líka með bílinn…nú ert þú aðal gellan í bænum!

  2. afi says:

    Góðar óskir
    Innilega til hamingju með þetta góða fólk. Þú ert heppin að hafa stóru systur svona nærri.

Skildu eftir svar