Ömmustubburinn minn hann Oddur Vilberg á afmæli. Það verður nóg að gera hjá honum í dag því það er fyrsti almenni skóladagurinn og svo fær hann vini sína í veislu eftir hádegið.
Hann er enn ekki búinn að gefa merki um að hann sé orðinn of stór til þess að láta kalla sig ömmustubbinn minn. Í vetur vildi hann alls ekki að ég hætti því og þá gerðum við samning um að hann léti mig vita þegar hann væri orðinn of stór til að vilja láta kalla sig ömmustubb.
Hann skríður enn upp í fangið á ömmu og þykir gott að láta knúsa sig, þ.e.a.s. þegar hann má vera að því en það er oft mikið að gera hjá svona stubbum að leika við vini sína, hoppa á trampolínum og sparka í bolta. Amma segir bara
Til hamingju með daginn
elsku Oddur Vilberg
Til hamingju með ömmustubbinn
Vona að dagurinn verði frábær hjá honum.
Sakna ykkar og var að pæla í hvort þið væruð ekki á leið í haustferð til danaveldis? :o)
Aldrei of stór
Óska þér og ömmustubbnum innilega til hamingju með daginn.
Innilega til hamingju með stubbinn – frábært samkomulag sem þið hafið gert með ykkur varðandi nafnbótina 😀
Bestu kveðjur úr Njörvasundinu,
Þín Stefa
Til hamingju 🙂
Hamingjuóskir
Það er sannarlega stór dagur hjá stubbnum og þér í dag, innilega til hamingju bæði tvö.
Það er dásamlegt að eiga svona stubb og annan til vara þegar þessi verður of stór.
Hamingjuóskir frá okkur Palla,
Þórunn
Til hamingju með
Til hamingju með ömmustubbinn- frábært samkomulag hjá ykkur. Alltaf jafn gaman að skoða síðuna þína.
Takk fyrir
Þakka ykkur fyrir allar afmæliskveðjurnar. Alltaf svo gaman þegar margir leggja orð í belginn.