Kínversk speki – fallegur texti.

Hún Sigurrós mín sendi mér þennan texta í gær og mér finnst hann svo fallegur að ég má til að leyfa fleirum að njóta.

Gömul kínversk kona átti tvo leirpotta sem hún hengdi hvorn á  sinn endann á langri stöng sem hún bar á öxlum sínum. Á hverjum degi sótti  hún vatn langa leið í uppsprettu fjarri heimilinu. Annar potturinn var sprunginn  eftir endilöngu og var því aðeins hálffullur þegar heim kom. Hinn potturinn var  fullkominn og skilaði sér alltaf fullur af vatni eftir þessa löngu leið heim að  húsinu. Svona gekk þetta í tvo ár, daglega gekk gamla konan með pottana að  uppsprettunni og daglega kom hún heim með aðeins einn og hálfan pott af  vatni.

Auðvitað var fullkomni potturinn ánægður með sína frammistöðu en  sprungni potturinn skammaðist sín og leið mjög illa þar sem frammistaða hans var  aðeins til hálfs við það sem hann var skapaður til að gera.
Eftir tveggja  ára vinnu talaði hann til konunnar við uppsprettuna. "Ég skammast mín fyrir  frammistöðu mína, vegna sprungunnar á hlið minni lekur helmingurinn af vatninu  burt á leiðinni heim. Þú ættir að henda mér og fá þér nýjan pott.,,

Gamla  konan brosti, "Hefur þú tekið eftir að þín hlið við götuna er blómum skreytt á  meðan engin blóm vaxa hinum megin götunnar?

Það er vegna þess að ég hef  alltaf vitað af þessum galla þínum og þess vegna sáði ég fræum á þinni hlið  götunnar og á hverjum degi þegar við göngum heim vökvar þú blómin mín. Ég hef um  árabil getað týnt þessi fallegu blóm og skreytt heimili mitt með þeim. Af því að  þú ert eins og þú ert þá hef ég fengið að njóta fegurðar  blómanna.

Það er eins með okkur manneskjurnar, enginn er gallalaus.  En það eru gallarnir og sprungurnar sem gera hvern og einn einstakann. Þess  vegna er svo spennandi að kynnast og eyða ævinni saman. Við þurfum bara að læra  að taka hverri manneskju eins og hún er og sjá jákvæðu hliðarnar hjá hvort  öðru.

This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink.

3 Responses to Kínversk speki – fallegur texti.

  1. Svanfríður says:

    Mér hefur alltaf líkað betur við það fólk sem viðurkennir galla sína og mistök fram yfir þá sem segjast hafa allt á tæru og þurfa ekki neitt frá neinum..falleg saga.

  2. RM á Ak says:

    Mikið er hún góð kínverska sagan frá ykkur mæðgum.Einnig var ég að lesa um unga manninn í ömmu og afa húsi og gat ekki varist brosi því lýsingin var svo ljóslifandi.En mikið er gott qað vita hvað hann á góða ömmu og afa í nágrenninu.Kær kveðja frá okkur hérna norðan heiða.

  3. Sigurrós says:

    Gaman að sjá að sagan snerti þig líka 🙂 Ég fékk þetta frá tengdamömmu og bara varð að senda áfram!

Skildu eftir svar