Áframsendur texti sem ég fékk frá góðri vinkonu.

Sagan segir að tveir vinir hafi gengið í eyðimörk.
Á leiðinni fóru þeir að rífast, og annar vinurinn gaf hinum létt á kjammann.  

Honum sárnaði, en án þess að segja nokkuð skrifaði hann í sandinn;

"Í DAG GAF BESTI VINUR MINN MÉR, EINN Á ´ANN!"  

Þeir gengu áfram þangað til þeir komu að vatnslind og þar fóru þeir út í.
Vinurinn sem hafði orðið fyrir hinum áður var nærri drukknaður, en var bjargað af vini sínum.
Þegar hann hafði jafnað sig , risti hann í stein;

" Í DAG BJARGAÐI BESTI VINUR MINN MÉR FRÁ DRUKKNUN".  

Vinurinn sem bæði hafði veitt honum tiltal og bjargað honum spurði:

"Þegar ég sló þig, skrifaðir þú í sandinn, og núna skrifar þú í steininn.
"Af hverju?

" Hann svaraði: Þegar einhver gerir þér eitthvað illt áttu að skrifa það í sandinn, þar sem vindur fyrirgefningar getur eytt því.

En þegar einhver gerir þér eitthvað gott þá áttu að rista það í stein þar sem enginn getur eytt því.  

"LÆRÐU AÐ SKRIFA SÁRINDI ÞÍN Í SANDINN OG GRAFA HAMINGJU ÞÍNA Í STEIN"!

Það er sagt að það taki mann eina mínútu að hitta sérstaka manneskju, einn tíma að kunna að meta hana, einn dag að elska hana, en HEILA ævi að gleyma henni.

Sendu þessa sögu til þeirra sem þú gleymir aldrei,

Ef þú yfir höfuð sendir hana ekki til neins, þá þýðir það bara eitt, að þú hafir of mikið að gera og hafir gleymt vinum þínum.

"GEFÐU ÞÉR TÍMA TIL AÐ LIFA – OG EIGÐU GÓÐAN DAG!"

This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink.

3 Responses to Áframsendur texti sem ég fékk frá góðri vinkonu.

  1. Guðlaug Hestnes says:

    speki
    Þetta er það sem maður kallar mannkærleika. Góð lexía. Kveðja

  2. afi says:

    Til eftirbreitni.
    Góð orð í tíma töluð. Því miður er þessu of oft öfugt farið. Þess vegna er heimurinn eins og hann er í dag.

  3. Ólöf says:

    Þetta er góð lesning. Ég tók mér það bessaleyfi að afrita textann og setja hann á síðuna mína. – Takk fyrir!
    Bestu kveðjur heim í Sóltúnið frá Cardiff.

Skildu eftir svar