Afmælisbarn dagsins

er hann Magnús Már tengdasonur minn. Ég óska honum innilega til hamingju með daginn um leið og ég þakka honum fyrir hvað hann er alltaf góður við tengdó.  Þau Magnús og Guðbjörg voru að koma heim í gær frá höfuðstað Norðurlandsins þar sem þau hafa verið í dekri í mat og drykk hjá foreldrum Magnúsar og fjölskyldu í rúma viku. 

Hér er
Magnús Már, svo er hann nafni minn er sjaldan fjarri svo
hann fær að fljóta með á afmælismyndinni hans pabba síns.

mmm.jpg

This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink.

One Response to Afmælisbarn dagsins

  1. Magnús A says:

    2 góðir
    Heil og sæl, Ragna og Haukur og gleðilega páska. þeir feðgar eru sællegir eftir norðurferðina. Afa á Akureyri tókst nokkuð vel upp við uppeldið. Kenndi m.a. drengnum nokkra ósiði, foreldrunum til hrellingar. Tek aftur til við þá iðju í byrjun júní. Kær kveðja frá Akureyringunum.

Skildu eftir svar