Nú ætla ég að slökkva á tölvunni minni og reyna að komast af án hennar þangað til um miðjan maí. Vonandi held ég það út en ég veit alveg að ég fæ fráhvarfseinkenni og hugsa látlaust til ykkar kæru netvinir. Stundum þarf maður bara að beita sig hörðu. Kannski stelst ég nú til að kommentera eitthvað hjá ykkur þrátt fyrir tölvubindindið, en ég ætla ekki að setja inn nýja færslu. Á meðan skulum við hugsa um þetta
Lífið er ekki kapphlaup.
Einu verðlaunin sem eru þess virði
að vinna, eru ást og kærleikur
fjölskyldu og vina.
Elsku Ragna mín-kærar þakkir fyrir fallega kveðju á síðunni þinni og minni. Góða ferð út og góða skemmtun mín kæra. Ég hlakka til að heyra frá þér og ferðinni þegar þú kemur heim aftur.
Kveðjur, Svanfríður og co.
góða ferð…
í sólina mín kæra og hafðu það alveg ofboðslega gott.
Góða ferð
Hafið það sem allra best í fríinu og sólinni..
Bestu kveðjur
kveðja
Sæl nafna mín ég datt inn á bloggið þitt og sá að þið eruð að bregða ykkur af bæ og í fyrsta lagi óska ég ykkur gleðilegs sumars sem ég veit að verður með eindæmum gott og einnig góða ferð og góða heimkomu.
Sjáumst í sumar í kapphlaupi eftir litla gullinu. Bestu kveðjur til ykkar Hauks frá okkur hjónakornunum í Huldugili..
Kaer kvedja
Kaer kvedja elskurnar mínar. Eg er bara ad lata ykkur vita ad eg var ad hugsa til ykkar. Her er yndislegt ad vera og loftslagid frabaert. Lidi ykkur ollum vel.
Góða skemmtun
Það var gott að heyra að ykkur líkar vel þarna og líður vel. Njótið sem best.
Þórunn
Náðugir dagar
Vonandi upplifið þið gott frí og náðuga daga.