Ragna Björk 6mánaða. – Ragnar Fannberg 1árs og 6 mánaða.

Já þau dafna vel barnabörnin mín og mestan mun sér maður á þeim yngstu, nánast frá degi til dags.
Í dag er Ragna Björk 6 mánaða, komin með tvær tennur og farin að sitja ein. Ég segi nú eins og Sobbeggi afi sagði um Lillu Heggu – Hún er orðin svo mikil manneskja þessi elska.  Mamman skrásetur allt sem þeirri stuttu viðkemur  svo maður þarf ekki annað en kíkja á síðuna hennar til að finna allar nýjustu myndirnar, myndböndin og fréttirnar.

Hér er hún með afa í síðustu heimsókn sinni í Sóltúnið.
Til hamingju nafna mín með hálfs árs afmælið þitt.
rbj6m.jpg

Svo er Ragnar Fannberg frændi hennar alveg að verða 1 árs og 6 mánaða eða þann 26. sept.

Hann er orðinn svo stór og duglegur til allra verka og hér sést hann bjástra við ryksuguna. Hann kemur henni alltaf í gang en hún lætur bara svo illa að stjórn.  Pabbi hans tók skemmtilegt myndband af okkur Ragnari í sumar þegar hann var að byrja að babbla og var búinn að átta sig á hrynjandanum í málinu en enginn skildi hvað hann var að segja. Ef þið farið inná vef pabba hans hér þá þarf bara að smella á myndina og myndbandið fer í gang. Það var bara svo mikið búið af samtalinu okkar þegar okkur datt í hug að sækja myndavél.
Nú reynir minn að segja allt sem hann heyrir og er farinn að gera sig mjög skiljanlegann.

"Þetta er nú meira galdratækið og það heyrist svo skemmtilega hátt í því líka"

hjalpari1.jpg

"Ætli ég slökkvi samt ekki bara á þessu og láti mömmu taka við?"

hjalpari2.jpg

 

This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink.

One Response to Ragna Björk 6mánaða. – Ragnar Fannberg 1árs og 6 mánaða.

  1. Guðlaug Hestnes says:

    falleg…
    þar sem ungviðið og eldri kynslóðin er saman getur útkoman ekki verið annað en falleg. Bosmamikli snáðinn veit sko alveg hvað hann er að gera þó svo að hann ráði nú ekki við tryllitækið. Þið eruð rík…..

Skildu eftir svar