Já það var svo sannarlega gaman hjá okkur í kvöld því við fengum góða gesti í heimsókn.
Þegar ég vissi að Þórunn og Palli væru að koma í heimsókn til Íslands frá Portúgal þá lagði ég inn pöntun um að fá þau í mat til okkar á Selfoss. Í dag var svo komið að því að hitta þau mætu blogghjón aftur og svo náði ég að fá hana Gurrý, sem lengi hefur búið í Jordaniu og við þekkjum svo vel af blogginu, til þess að koma líka.
Gurrý var ég að hitta í fyrsta skipti, en það varð til þess að í kvöld náði ég því takmarki að hafa hitt alla þá sem eru á tenglalistanum mínum sem sem kallast Föstu bloggvinirnir.
Í tilefni af þessari góðu gestakomu þá tók ég þessar myndir.
Hér sjáum við þær stöllur Þórunni og Gurry í góðum félagsskap Palla.
og hér ræða þeir Palli og Haukur málin
Mér finnst vel við eigandi að taka svo í lokin texta úr bókinni um hamingjuna.
"Við skulum vera þakklát því fólki
sem gleður okkur;
það eru hinir gæskuríku garðyrkjumenn
sem fá sálir okkr til að blómstra"
Mér finnst svo stórkostlegt hvað bloggið þitt hefur fært þér marga góða vini 🙂
gaman…
þetta hefur verið gaman með stóru G!