Hún á afmæli í dag, hún á …..

Hún á afmæli í dag hún Edda systir mín. Hann Oddur heitinn hefði einnig átt afmæli í dag því hann var fæddur 4. maí og þetta er líka afmælisdagur Birgis tengdasonar Eddu.
Já 4. maí er mikill afmælisdagur.

En systir mín hefur vinninginn og á stærsta afmælið, hún er 70 ára, svo ótrúlegt sem það nú hljómar, enda konan kornung ennþá. Í dag fögnum við með henni á Selfossi þar sem hún býður til veisluhalda í tilefni dagsins.  

 Hún systir mín er þekkt fyrir mikinn myndarskap, og er þá sama
hvort um er að ræða þátttöku í félagsmálum, hannyrðir, garðrækt
eða annað. Allt er unnið af sama kappinu og vandvirkninni. 

Hérna er mynd af henni í sumarbústað þeirra hjóna
og vitaskuld er hún að baka pönnukökur, maður
fer sko aldrei svangur frá henni systur minni.

Til hamingju með stórafmælið Edda mín.
systir1.jpg

This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink.

2 Responses to Hún á afmæli í dag, hún á …..

  1. Anna Sigga says:

    Til hamingju með stóru systur!
    Kveðjur og knús til þín og þinn!

  2. Svanfríður says:

    Til hamingju með stóru systur. Hún er líka heppin að eiga þig að og ég er viss um að hún veit það:)

Skildu eftir svar