Það sem þeir eru frábærir

strákarnir okkar.  Já nú eru þeir sko strákarnir okkar handboltastrákarnir þó stundum viljum við ekkert af þeim vita, þ.e. þegar illa gengur. En að vinna fyrst Rússa og síðan Þjóðverja er bara snilld.

Þetta segir MBL um leikinn.

Ég er alltaf svo á móti því að hrósa sigri of snemma og þegar fimm mínútur voru í leikslok þá hrópaði  Haukur "Við erum bara búin að vinna Þjóðverja". Þá sagði sú tortryggna: "Það getur nú alveg snúist við á fimm mínútum.  Ekki fagna of snemma því þá fer svo oft að ganga illa".

En strákarnir okkar héldu sínu striki og stóðu sig alveg frábærlega og árangurinn eftir því.

Til hamingju strákar. 

Haldið nú áfram á sömu braut. Húrra, Húrra.

This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink.

One Response to Það sem þeir eru frábærir

  1. Anna Sigga says:

    Já, þetta var glæsilegt hjá strákunum!
    Ég náði að fylgjast aðeins með hluta af seinni hálfleiknum á moggavefnum en ég stóð mig að því að hrópa upp fimm mín. fyrir leikslok „Þetta er komið“ en hugsaði í sömu andrá að það gæti verið of snemmt að fagna. En sem betur fer þá höfðu þeir þetta og strákarnir sýndu að það er allt hægt ef hugurinn við verkefnið og allir standa saman sem einn maður.
    Takk annars fyrir síðast, Ragna mín.

Skildu eftir svar