Tæknin er frábær.

Gungur sem halda að þær geti falið sig undir tilbúnum nöfnum og gert þannig árásir á heimasíður átta sig ekki á því að tæknin er nú einu sinni þannig að það er hægt að rekja úr hvaða tölvu óhróðurinn er sendur. 

Ég hef orðið fyrir mjög ómaklegum árásum á síðunni minni undanfarna daga. Ég hef eytt því flestu út jafnóðum en eitthvað af því hafið þið séð því ég hef fengið góð viðbrögð frá ykkur kæru netvinir.  Ég geymdi hinsvegar nóg gögn til þess að það var hægt að rekja þetta allt til sömu persónu.  

Það eina sem ég get gert núna, er að vona að þessi sjúka sál fái bót meina sinna og fari að snúa sér að jákvæðari hlutum.   

Við látum rannsóknina liggja milli hluta.

This entry was posted in Óflokkað. Bookmark the permalink.

One Response to Tæknin er frábær.

  1. Katla says:

    Það eru góðar fréttir Ragna mín!
    Tæknin er svo sannarlega frábær, en maður kann víst ekki nema brota-brotabrot af henni; þá er gott að eiga góða að: )
    Kærar kv.

Skildu eftir svar