Fyrsta bloggið á nýju heimasíðunni minni.

Ég er svona að taka smá forskot á sæluna því nýja heimasíðan er ekki alveg tilbúin.  Ég fór með tölvuna á gjörgæsluna til Jóa tengdasonar míns í gærkveldi vegna þess að ég var komin með eitthvað fjárans „Netlog“, inná hjá mér, sem ég var dauðhrædd við. Þetta hafði þó ekkert með heimasíðuna mína að gera.  Jói fór strax í gang með að fara yfir allar varnir, hreinsa og betrumbæta.  Ég kom svo við seinni partinn í dag til að taka tölvuna með mér heim, en þá beið mín „surprize“.  Hann var búinn að gera nýja heimasíðu sem mun hafa miklu meiri möguleika en gamla síðan.  Heimasíðan er ennþá á byrjunarstigi en nú get ég þó flokkað uppskriftirnar mínar, sem ekki var hægt áður og svo eiga ýmsar nýjungar eftir að koma inn. Útlitið á líka eftir að breytast eins og ég vil hafa það.

Námsefnið sem ég hafði með mér heim,  svona í byrjun ,var að geta sett inn í dagbókina mína. Ég lærði líka að færa í flokka  uppskriftirnar mínar, en Jói var reyndar byrjaður á því verkefni.  Nú þarf ég bara að læra að gera fleiri yfirflokka svo ég geti flokkað í fleiri flokka, eins og Kjötréttir, Heitir réttir, Salöt og Eftirréttir svo eitthvað sé nefnt, en ég er svona búin að gróf-flokka þetta.

Ég er alveg í skýjunum og hlakka mikið til að halda áfram að læra á þetta, setja inn myndir og fleira.

Kærar þakki elsku Jói minn fyrir að koma mér svona á óvart og fyrir alla vinnuna sem þú ert búinn að leggja í þetta.

Nú er bara að vita hvort ég hef gert þetta rétt.

 

 

This entry was posted in Ýmislegt. Bookmark the permalink.

6 Responses to Fyrsta bloggið á nýju heimasíðunni minni.

  1. Sigurrós says:

    „Like“ á þetta 😉 híhí
    Hlakka til að fylgjast með síðunni þinni blómstra og dafna 🙂

  2. Stefa says:

    Til hamingju með nýju síðuna elsku Ragna! Þið mútta eruð jafn heppnar með tengdasyni sé ég – þeir passa upp á að tölvumálin séu í lagi fyrir utan alla aðra hæfileika sem þeir hafa 😀

    Kv,
    Stefa

  3. Katla says:

    SPENNANDI! Til hamingju! Hlakka sko mikið til að fylgjast með hér!

  4. Ragna says:

    Takk fyrir góðar óskir. Ég hlakka líka til að nota þetta.

    • Þórunn says:

      Til hamingju Ragna, þetta er sannarlega nýtt útlit, hlakka til að sjá framhaldið. Nú held ég að það sé kominn tími til að staðsetja mig í Árborg en ekki í Portúgal, en ég á samt eftir að finna gott nafn á síðuna 🙂

  5. Ragna says:

    Takk Þórunn mín. Já nú þarft þú að breyta hjá þér – og ég þarf að breyta úr Portúgal í Selfoss hjá mér. Ég hlakka til þegar ég get sett einhverja valda mynd frá mér sem opnun á síðunni og þegar ég get farið að setja myndir með textanum. Þetta er heilmikil umfram vinna hjá Jóa svo ég ætla bara að vera þolinmóð þó allt smelli ekki inn núna strax. Þetta kom mér svo algjörlega, en skemmtilega á óvart að vera allt í einu að fá nýja síðu.

Skildu eftir svar við Ragna Hætta við svar